Jæja þá eru þessi blessuðu próf búin hjá mér.
Fór í fyrsta prófið á mánudaginn fyrir viku, tónheyrn bóklegt og
gekk alveg hund illa var í bömmer í heilan dag eftir. síðan fór ég
í morgun í stigsprófið mitt tók 4 stig og gekk bara ágætlega fékk
8,3 og er bara ágætlega stolt af því. Í kvöld fór ég síðan í
tónheyrn munnlega prófið og gekk það betur en ég bjóst við klúðraði
lestrinum eins og alltaf en ég verð bara að vona að ég nái
þessu....
Á miðvikudaginn síðasta var Ríkeyjardagur var með henni allan
daginn og var alveg komin tími til að við tvær héngum saman og
töluðum auðvitað eins og geðsjúklingar og höguðum okkur náttúrlega
eins og fílf bara gaman fórum á búðarráp, pöntuðum okkur pizzu og
síðan gaf Kalli okkur miða á einhverja mynd í bíó eitthvað it´s a
boy, girl thing sem var jújú bara svona ágæt skemmtun held að ég
persónulega myndi ekki kaupa miða á hana meira svona kannski leigja
hana en við náðum að skemmta okkur.
Annars er ekkert voðalega mikið búið að gerast jú Eurovision en
Eiki komst ekki áfram, ég meina það þessi keppni er orðin bara rugl
mér finnst að við ættum bara að hætta að taka þátt í henni ekkert
nema klíkuskapur uss nenni ekki einu sinni að horfa á þetta
lengur.
Síðasta vika fór mest í að læra fyrir þessi blessuðu próf en ég get
fagnað núna að þau eru búin.
Já síðan er ég að fara að módelast á morgun fyrir Jóa hann er að
fara að farða mig í svona sixties stíl og Elli ætlar að greiða mér
en mig vantar bara klæðnaðinn en ætli maður geti ekki stokkið inní
einhverja búð og keypt einn kjól ég meina maður á aldrei nóg af
kjólum ekki satt stelpur??
En jæja ætla að fara í bælið bæ bæ